Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Birkir
  • Netfang: birkir1989@hotmail
  • Staður: Garðabær
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it…

Innskráningar kubbur

R.I.P

06. apríl 2009 klukkan 21:10

Október 2006 - Febrúar 2009 Cry

Blogg um ekkert

11. mars 2009 klukkan 16:06

Vá það er langt síðan ég skrifaði blogg. Það er bara kanski ekkert mikið merkinlegt að gerast hjá mér þessa dagana. Það er bara þessi sama hringrás endalaust. Mér finnst hún ekki skemmtileg. Vinna og skóli bara. 

Vá hvað mér leiðist einmitt núna. og vá hvað ég hef ekkert til að skrifa um. Spurning hvort maður ætti að byrta þetta. Vá ef ég byrti þetta ekki þá þýðir það að ég sé að tala við sjálfan mig sem gerir mig að asna eða eitthvað. Hehe. Mig langar svo til að gera eitthvað awsome. Einhver game? Nei ég veit ekki. 

En ef ég skrifa eitthvað um flugið þá er að ganga eitthvað illa fyrir mig að komast í flug. Síðustu fríhelgina mína var gott veður og ég kemst í flug en ég get ekki fengið vél þar sem þær voru í skoðun eins og alltaf. Ég er að lenda í þessu sama veseni næstu helgi en ég vona það besta.

Ég hef svo sem ekkert meira að segja annað en það að Hero var magnað show. Svooo ég er farinn að hringja í einhverju og gá hvort einhver sé til í að veita mér félagsskap.

Birkir

Afmælisblogg :D

01. febrúar 2009 klukkan 15:36

Í gær var 31. janúar. Þá átti ég afmæli. Ég hélt uppá það með veislu hérna í gær. Ég var með svona grímubúningarafmæli. Það var mjög gaman fannst mér. Ég var mafíósi/Sheriff. Samt eiginlega meira mafíósi. Ég var í teinóttum jakkafötum í svonavesti og mafíu hatt og með byssu. Ég ætla að henda inn myndum frá þessu öllu við tækifæri. Inná facebook sko.

Ég fékk mikið af skemmtilegum og áhugarverðum hlutum. Ég fékk t.d. Kung Fu Panda frá Axel og Mörtu. Einmitt það sem mig langaði svo í :D. Pakkin frá þeim var samt klárlega flottast innpakkaður. Hann meira að segja ilmaði vel. Síðan fékk ég gíraffa frá Tinnu Lind sem heitir núna Ponjo Junior. Hann er fæddur 15. janúar. Hann var meira að segja með gleraugu sem gerir augun hanns svona stór. Þau voru vinsæl í afmælinu. Síðan frá Sigga og Frikka fékk ég lítin grís, mynd af bíl og DVD myndir, þar á meðal Silvíu nótt. Gaman að þessu. Siðan fékk ég mikið annað sekmmtilegt eins og t.d flugvélabók og pínu litla tréliti :D Það er snilld sko. Frá Ragga, Ástu og Guðrúnu fékk ég pening og allaveg snilldar flott kort gert af Guðrúnu. Magnað.

En núna er ég bara orðinn 20 ára. Það er pínu skrítið. Ekkert er svo sem öðruvísi nema að ég er 20 ára. Ég veit ekki hvað ég get sagt. Ég má fara í ríkið, ekki samt að ég sé að fara eitthvað í það. Bara ég má það. Það er spurning um að ég fari bara í það til þess að gera farið í það. Nei grín. En allavegan þá þakkaég ykkur sem voruð í afmælinu fyrir gott kvöld :D.

Flug og stuff

18. janúar 2009 klukkan 15:59

Byrjið að safna því ég á afmæli eftir 13 daga. Nei ég segji svona. Það verður eitt magnaðasta party í sögu mannkinsins laugardaginn 31. Janúar. VIP party með guggur og froðudiskó. Nei ég er að bulla.  En það verður eitthvað grín. Ég verð 20 ára. Það er spennandi en samt ekki því að þá er ég kominn á þrítugs aldur. Það hræðir mig, eða ekki en það er bara óþæginlegt. 

En smá svona af lífi mínu. Það er ekki mikið að gerast þessa dagana annað en það er skóli sko. Ég er í rétt yfir 10 einingum þannig að stundartaflan er auð. En ég nenni ekki að blogga um skóla. Ég held að flug sé málið.

Ég ætla að segja ykkur frá flugtímanum sem ég fór í síðasta þriðjudag. Það var bara góður tími en hann hefði verið betri hefði ég ekki verið að fljúga einn og það í suðursvæði. Suðursvæði er staður hjá keili sem ég er búinn að fljúga 700 sinnum. Eða ekki, en samt. Ég ætlaði að taka smá cross country en það var ekki veður í það nema þá að fara norður. Nennti því ekki. Eða jú ég nennti því en bara, já. Ég fór í lendingar á reykjavíkurvelli og síðan í suðursvæði að leika mér að gera smá zero G og einhverjar æfingar. Tók eitt stall og hafði eingu gleimt. Hehe. 

 

 

En munið bara að taka 31. janúar frá :D Cya.

Árið er liðið

01. janúar 2009 klukkan 15:42
Vá. Það er bara árið 2009. Tíminn líður hratt. Á þessu ári er ég búinn að ná tvemur settum markmiðum. Ég fékk flugpróf og ég byrjaði aftur í skóla. Ég er sáttur með þetta. Ég er hinsvegar ekki mikið búinn að fljúga. Það er ekk gott. Ég get sagt ykkur að mér langar svo mikið að fara að fljúfa að mig dreymdi það núna síðustu nótt.

En smá að gærdeiginum. Hann var bara allt í lagi sko. Ég var heima til kl 2300 sirka. Þá fór ég heim til Alla frænda. Svo kl 0030 fór ég í krossinn með Lindu. Þar var flugeldasýning. Mér fannst frekar óþæginlegt að vera þarna því ég þekkti ekki neinn. Svo kl 0130 fór ég og Linda einn laugarveg og síðan í KSS, þar var party. Það var ágætt sko. Við sprengdum flugelda t.d. Þegar kl var að verða 4 minnir mig þá fórum við heim til Önnu B að spila. Ég var með Gísla í liði og þetta var spurningaspil þannnig við stútuðum þessu. Eða hefðum gert það hefðum við klárað spilið.

Læt þetta gott heita og......


..::GLEÐILEGT NÝTT ÁR::.. 

Einkanir

19. desember 2008 klukkan 01:10
Ég er happy. Ég fékk í dag einunirnar og þær voru góðar.
Bifvélavirkjun: 9
Grunnteikning: 10
Íþróttir: 10
Málmsuða: 8
Plötuvinna: 9
Raffræði: 9
Stærðfræði: 7

Ég féll hinsvegar í dönsku. Það sökkar. En annað er gott. Sérstakar þakkir til Óskars sem kenndi mér raffræði og Tinnu Lindar sem hjálpai mér með stærðfræði :D.

En fyrir utan það að einkunirnar er ekkert að frétta. Það er 6 dagar í jólin og ekkert jólaskap komið. Síðan er lítið um jóla skreitingar hérna heima sem er ekki gott. Það er snjór úti sem gerir þetta pínu kósí en leiðinlegt fyrir mig því ég er á bíl. Ég er að fara með kaggan í skoðun á morgun og á von á endurskoðun því ég er á lélegum dekkjum. Kanski slepp ég í gegn, varla.

Meira hef ég ekki að segja. Hafið það gött lömbin mín. Mmmmmm lambakjöt.

Birkir

Blogg....

09. desember 2008 klukkan 22:19
Þá er komið að því. BLOOOOOOOOG. Eða ekki. Núna er maður í prófum sko. Þau eru samt að enda. Það er gott. Ég á eitt auðvelt próf eftir. Sem er líka gott. Það er aflvélavirkjun eða bara bifvélavirkjun. Gaman að því. Stærðfræðiprófið var ekki ervitt. Sem er snilld sko. Ef ég fæ 7 eða yfir þá baka ég handa þér köku. Síðan myndu nú 7000 manns lesa þetta blogg. Tisss bara tvö comment á hitt bloggið og annað þeirra frá mér. Þið getið gert betur en þetta. Þá meina ég þið tveir sem lesið þetta. Nei ég veit ekki. Það er bara þannig þegar maður fær sér facebook þá nennirmaður varla að hanga á þessu. Færð kanski 10 nodification á dag þar en 2 comment á hálfum mánuði hér.

Í gær fór bíllinn minn á verkstæði. Það var ervitt að láta verða að því vegna þess að ég vissi að þessi viðgerð væri svo dýr. Það var líka soldið mikið að honum. Vatnslásinn ónýut (gaurinn sem sér um að vatnið hitni á vélinni), bremsudælan (Gaurinn sem sér um að klemma bremsudiskinn), bremsudiskurinn (daurinn sem sér um að láta dæluna klemma sig :D) og bremsuklossarnir (gaurarnir sem sjá um að vera á milli bremsudælunar og disksins). Langt.is. Þetta kostaði mig 76 þúsund kall og meðavið það að ég kom með bremsudiskinn, klossana og vatnslásinn. Þannig það var bara bremsudælan og smá þéttigúmi í hina dæluna plús vinna sem ég borgaði fyrir. Mér langar í þennan 76 þ. kall aftur. Það tók mig tíma að vinna fyrir honum en nú er hann farinn. EN ég þarf að hafa bíl :(.

Þá er þetta komið gott held ég. Comment væri ekki verra sko.

P.S Mér finnst ekki eins og jólin séu eftir 15 daga Undecided

Þetta blogg er EKKI bara um bíla

24. nóvember 2008 klukkan 02:05
Ég ætla að skrifa smá blogg. Það er svo langt síðan ég gerði það. Það sem er að frétta af mér er ekki mikið. Skóli og svona. Það eru að koma próf. Mér finnst þessi skóla önn ekki búinn að vera lengi. Hún gengur líka frekar vel. Tveir kennarar eru búnir að segja að ég sé búinn að ná, þó ég sé ekki búinn að fara í prófið. Sem er gott. Það er aflvélavirkjun og plötuvinna. En talandi um bifvélavirkjun, þá er bílinn minn mjög svo leiðinlegur við mig. Ég þoli hann ekki. Vatnslásin er bilaður í honum. Sem samt gaurinn sem sér um það að hita vélina. En hvað gerist þegar þið ýtið á bremsuna inní bílnum ykkar? Bíllin hægir á sér því það er verið að klemma bremsudiskin. En hvað er það svo sem gerist þegar þið sleppið? Þá klemmist diskurinn ekki lengur. Það hinsvegar gerist ekki hjá mér á aftari hægra hjólinu. Ég þoli ekki þessar viðbjóðslegu afturbremsur. Best væri að taka þær af og henda þeim, samt ekki sko. Það var auli á hafnafyrði sem er með verkstæði sem seldi mér þessa bremsudælu og hún var biluð. Ég get ekki skilað henni því ég get ekki sannað það að ég keipti hana hjá honum og það er líka langt síðan, í sumar sko. Hún er búinn að skemma bremsuklussan á bílnum og að því að hann er ónýtur þá er hann búinn að skemma bremsudiskinn. Pirr í öðruveldi.

Talandi um annað veldi. Þá var ég að læra STÆ í dag (þannig séð í gær samt) í marga klukkutíma. Takið samt eftir því hvernig ég tengi þetta blogg saman á nördalegan og asnarlega nátt. Hehe. En allavegna. Þá sérstakar þakkir til Tinnu Lindar fyrir að hafa næstum því endalausa þolinmæði. Belinve me það er ekki gaman að kenna mér hluti, sérstakelga eitthvað bóklegt sem ég hef ekki mikin áhuga á. En mér langar að læra þetta til að ná en ég bara get ekki notað þetta í mikið, held ég. Ég get notað flugprófið í mikið.

Smá um flug. Ég þarf að fara að fljúga meira. Ég á samt ekki pening fyrir neinu. Ég þarf að gera við bílinn minn sem kostar pening (varahlutir og eitthvað á verstæði) og síðan er skólagjöld í janúar. Ég þarf að vera duglegur að vinna í desember í þessari FRÁBÆRU vinnu sem ég er í, eða ekki. Af hverju er lífið svona flókið. Mér langar bara að gera það sem ég vill og málið er dautt :P

En allavegana þá hef ég ekki mikið meira að segja. Skildu eftir comment, ef þér langar. Eða nei samt ekki því það er ekki í boði að sleppa því :P

Já það er fjör

02. nóvember 2008 klukkan 19:03
Nér líður vel núna að vita það að ég þarf ekki að vinna næstu helgi því ég var að vinna núna. Þetta var samt sóun á helgi sko en maður verður að fá pening. En hey, ég er með skandal. Ég var í vinnuni og lennti á manni sem er soldið sérstakur. Þetta byrjaði með því að hann kom skokkandi inná kaffistofu með tvær tómar Carlsberg dósir. Hann labbar síðan aðvaskinum og tekur upp hníf og byrjar að rétta beiglurnar sem voru á dósinni

Ég: Uuuu.... Hvað ertu að gera?
Hann: Ég er að laga dósina
Ég: Já ég sé það, en af hveru?
Hann: Því ég vill hafa hana rétta
Ég: Af hverju?
Hann: Því mér finnst Carlsberg svo góður
Ég: Já en þarftu þess vegna að laga tóma dós?
Hann: Já ég er að safna Þeim.
Ég: Nú... ok. Ertu kominn með margar?
Hann: Eina, ég drakk bjór á föstudaginn.

Síðan endaði sagan á því að ég fann 500 kall. Eða ekki. En skondið sko. Síðan er ég með aðra sögu. Fyrir þá sem ekki vita þá endar kennitalan mína á 2009. Ég var að skrá mig út og stimpla inn kennitöluna mína. Síðan var ein 13 ára stelpa að vinna þarna og sá mig stipla mig og og spurði "Bíddu what? ertu fæddur 2009?" Hehe snilld. Eins og með faxtækið :D.

En nóg af vinnuni. Það sem er að frétta af mér er ekki mikið. Skóln auðvitað og svona. Mér gengur svona þokkalega í honum. Fór í próf í grunteikningu 103 og fékk 9,5 :D. Það er snilld. Síðan gengur mér líka geðveikt vel í fagi sem heitir plötuninna. Það er eins og smíði í grunnskóla nema bara með járn. Ég er búinn að gera verkfærakassa, trekt, lítinn skáp og búkka (stuff til að setja undir bíl þegar maður er að vinna undir honum). Bæði þessi fög eiga það sameiginlegt að vera ekki verkleg. Mér gengur t.d. ekki vel í RAF 103 og DAN. Svekk ef ég fell í þessu.

Smá síðan frá helginni. Þetta var góð helgi sko. Ekki góða helgi samt. Eða þið fatti. Eða ekki? Allavegana þá var kaffihúsakvöld uppí kirkju á föstudaginn. Snilldar stemning og mjög gaman. Það var búið að raða borðunum svona "kaffihúsarlega" upp og það voru skemmtiatriði. Óli og Siggi voru með standup. Með því betra sko, eða ekki. Síðan á laugardaginn, gær sem sagt um kvöldið, þá fór ég í innflutningsparty til Vallíar (ekki rétt skirfað annars?). Það var mjög gaman. Var þarna frá kl 21 til 02 eða eitthvað. Við vorum í leiknum þar sem maður á að leika og hinir að geta. Ég átti að leika blóðmör. Mér tóks það a.m.k :D. Síðan var Vallí og Ingun (systur sko) hættulega góðar í þessum leik. Eitthvað plott í gangi. Síðan átti Tinna Lind að leika blöndung. Fyrir þá sem ekki vita þá er blöndungur tæki sem var á vélum í gamladaga til að blanda saman lofti og bensíni. Núna er þetta að mestu hætt og kominn bein innspiting. En allavegana þá gat hún leikið blöndung án þess að vita hvað það er. Leikti einhvern kínverja og helda að það hafi verið Ingun sem giskaði á blöndung eða blending eða what ever. Sick

Núna þarf ég samt að fara að læra. Á samt held ég ekki eftir að byrja á því strax. En ég er farinn að leika mér eitthvað, í tölvunni. Fínt væri að fá comment.


 

P.S Hvað er málið með mig og þennan apa?

Kjááááánalegt

22. október 2008 klukkan 00:41